Er þetta málið ?

Þegar ég las þessa frétt þá tók ég eftir einu sem er alveg einstaklega dæmigert af löggunni á Íslandi..

"Í framhaldinu var farið í hús annars staðar á höfuðborgarsvæðinu en þar fundust neysluskammtar af fíkniefnum sömu tegundar."

Nú les maður í nánast hverri viku að löggan hafi verið að taka fólk með fíkniefni. Sem er allt í góðu svo sem með það þegar þeir eru að taka fíkniefnasala sem eru með eitthvað magn af fíkniefnum, en að vera eltast allan daginn við eitthvað lið sem er svo kannski með 1-2 gr af hassi. Og tala nú ekki um þegar er verið að birta fréttir eins og "Lögreglan í Blöndósi handtók 18 ára stelpu með 1gr af meintum cannabisefnum" .. Hugsar fólk þegar það les svona frétt "Hjúkk, eins gott að þessi krimmi var stoppaður áður en hún drap einhvern útúr rugluð í hassvímu" ?? 

Er ekki alveg kominn tími á að setja einhver mörk um einkaneyslu hjá fólki ? Er það sanngjart að  fyrir það að vera tekinn með kannski 1gr af cannabisefnum að þú sért dæmdur glæpamaður ? Í dag t.d. þarf á mörgum stöðum að framvísa hreinu sakavottorði og ýmislegt svona .. Það er ekkert hægt að setja sama sem merki um það að fólk sú bara einhverjir harðsvíraðir glæpahundar þó svo viðkomandi hafi reykt cannabis efni af og til .. 

Þannig að ég legg til að löggan hætti nú að eyða þessum tíma sínum í að elta neytendur og fari að vinna vinnuna sína og elta frekar þá sem eru að koma þessu inní landið og selja þetta svo. 

Það er ekkert leyndarmál að löggan hér alveg suckar í sínu starfi og vegna þess að hún getur ekki fundið eða tekið "stóru kallana" í þessum bransa.. þá eltir hún 17 ára krakka sem kaupa sér einn og einn hassmola og skrifa svo fréttir um það hægri vinstri til að reyna lýta betur út ! 


mbl.is Fíkniefni fundust við húsleit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Arnórsson

Vafasamar fíkniefnavarnir

Af hverju skrifaði yfirmaður fíkniefnalögreglunnar, Björn Halldórsson, undir byssuleyfi fyrir Franklín Steiner og hvað varð af ríflega 3 1/2 kílói af amfetamíni, kókaíni, hassi, LSD og morfíni sem vantaði í geymslu lögreglunnar? Atli Gíslason lögmaður var látinn rannsaka málið en niðurstaða hans hefur aldrei verið birt opinberlega og flokkast nú undir ríkisleyndarmál. Þrátt fyrir þessi hneykslismál var enginn látinn sæta ábyrgð og þess vegna bitnuðu þau á orðstír lögreglunnar í heild sinni sem er ósanngjarnt gagnvart þeim lögreglumönnum sem höfðu hreinan skjöld í þessum málum.

Einn af mörgum reyfurum sem skrifaðir voru á fjórða áratugnum um ógnir maríúananeyslunnar.

Mörgum þótti skjóta skökku við þegar fréttist að Björn Halldórsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar, hefði skrifað upp á byssuleyfi fyrir þekktan fíkniefnasala hér í bæ. Látið var að því liggja að umræddir aðilar væru samverkamenn til margra ára. Fíkniefnasalinn hafi í skjóli friðhelgi ástundað iðju sína óáreittur gegn því að veita fíkniefnalögreglunni upplýsingar um keppinauta sína. Aðspurður kvaðst dómsmálaráðherra ekki hafa neitt út á þessa tilhögun að setja. Verslun með upplýsingar í afbrotamálum er að vísu ólögleg samkvæmt íslenskum lögum, en í þessu tilviki, líkt og í mörgum öðrum, eru embættismenn ríkisins hafnir yfir lög. Þeir þurfa ekki að standa reikningaskil gerða sinna, í þetta sinn, frekar en oft áður.

Stolnar fjaðrir

Þrátt fyrir aflát ráðherrans vekur þessi frétt óneitanlega upp ýmsar spurningar. Er fíkniefnasalinn á mála hjá Birni eða er Björn á mála hjá fíkniefnasalanum? Skreytir fíkniefnalögreglan sig með stolnum fjöðrum? Að hvað miklu leyti er uppljóstrun fíkniefnamála rannsóknum hennar að þakka, eða má rekja flestar þeirra til upplýsinga frá lögvernduðum dópsölum? Stunda íslenskir fíkniefnalögreglumenn sölu á fíkniefnum líkt og ýmsir kollegar þeirra erlendis? Þurfa þeir að gangast undir lyfjapróf eins og tíðkast hjá sambærilegum starfstéttum út í heimi?

"Stunda íslenskir fíkniefnalögreglumenn sölu á fíkniefnum líkt og ýmsir kollegar þeirra erlendis?"

Með þessum vangaveltum er ekki verið að vega að heiðri íslenskra fíkniefnalögreglumanna né gera störf þeirra tortryggileg í augum almennings, heldur hitt að vekja máls á því hvort ekki sé nauðsynlegt að koma á innra eftirliti með störfum löggæslunnar, líkt og háttur er annars staðar, og eðlilegt þykir. Jafnframt þurfa íslensk stjórnvöld að gera upp við sig hvort tilraun lögreglunnar til að miðstýra íslenskum fíkniefnamarkaði sé vænleg til árangurs, svo ekki sé minnast á lagalegar eða siðferðislegar forsendur hennar. Erlendis hafa þesskyns afskipti aðeins aukið umfang vandans. Tilburðir íslenskra stjórnvalda til að draga úr neyslu amfetamíns er gott dæmi um hvernig íhlutun misviturra ráðamanna gerir stundum illt verra.

Í upphafi skal endinn skoða

Árið 1970 sendi samstarfshópur um ávana- og fíknilyf frá sér álit þar sem fram kom að örvandi lyf væru talsvert misnotuð, einkum amfetamín. Nefndin lagði til að fylgst yrði betur með lyfjaávísunum lækna. Með reglugerð árið 1974 varð amfetamín eftirritunarskylt. Þetta þýðir að sjúklingurinn þarf að hafa undir höndum sérstakt lyfjakort, sem landlæknir veitir, til að fá lyfið sitt. Skömmu eftir að þessari skipan mála var komið á fór að bera á ólöglega innfluttu amfetamíni á fíkniefnamarkaðinum. Neytendur amfetamíns höfðu ekki lengur aðgang að læknum og leituðu nú til fíkniefnasala til að fullnægja þörf sinni fyrir örvandi lyf. Til að auka gróðann af sölunni og fjármagna eigin neyslu er amfetamínið drýgt með mjólkursykri eða öðrum íblöndunarefnum. Gæði efnisins dvína því verulega. Að sama skapi jókst kaupverð amfetamíns gífurlega frá því sem áður var. Hvoru tveggja leiddi til þess að sumir neytendur hófu að sprauta efninu í æð. Þannig fæst hámarksnýting á hverju grammi. Þegar hér er komið sögu hefur eðli spíttneyslunnar breyst drjúgum. Fram er kominn harður kjarni sprautuneytenda sem svífst einskis til að útvega sér fjármagn og lyf. Innbrot og önnur glæpastarfsemi verða fylgifiskar fíkninnar. Tilraunir með inntöku efna eins og fortrals, morfíns og annarra sterkra verkjadeyfandi lyfja fara vaxandi.

"Spyrja má hvort að stjórnvöld hefði betur setið á strák sínum og horft framhjá misnotkun amfetamíns á meðan hún var að einhverju leyti undir eftirliti lækna."

Ekki þarf að fjölyrða um þann gífurlega vanda sem af þessari þróun hefur hlotist. Áætlað er að 300 manns á Íslandi sprauti sig daglega með efnum sem hafa örvandi verkun. Nú er svo komið að landlæknir gengur fram fyrir skjöldu og biður yfirvöld um að dreifa nálum og sprautum meðal þessa ólánssama hóps. Spyrja má hvort að stjórnvöld hefði betur setið á strák sínum og horft framhjá misnotkun amfetamíns á meðan hún var að einhverju leyti undir eftirliti lækna. Afskiptasemi opinberra aðila hratt af stað atburðarás sem leitt hefur til ófremdarástands sem ennþá er ekki séð fyrir endann á.

(Birtist sem kjallaragrein í DV í febrúar 1997)

Það breytist alla vega ekkert til batnaðar  með löngu úreltri fíkniefnalöggjöf..

Óskar Arnórsson, 8.4.2008 kl. 20:08

2 identicon

Það er glæpur að nota og kaupa eiturlyf sama hversu mikið magn það er! Þú ferð á sakaskrá fyrir að stela kókflösku úr búð og afhverju áttu þá ekki að fara á sakaskrá fyrir að hafa eiturlyf í förum þér! Maður verður að taka afleiðingum gjörða sinna.

Ingvar Jónsson (IP-tala skráð) 8.4.2008 kl. 23:57

3 identicon

Ég er almennt á móti því að yfirvöld séu í neyslustýringum sem þessum. Það sem þú setur í eign líkama er þitt einkamál og lífsstílaval. Svo lengi sem þú skerðir ekki frelsi annarra þá kemur það þeim ekki við.

 Af hverju er ekki ráðist gegn stærsta fíkniefnasala landsins? Ríkinu.

Geiri (IP-tala skráð) 9.4.2008 kl. 07:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband